Blóm
Lífið er fínt, það er frábært,
þú ert svo glöð og svo ánægð.
Blóm blóm blóm, blóm blóm blóm,
blóm blóm blóm, blóm blóm blóm.
Lífið er fínt, það er frábært,
þú ert svo glaður og ánægður.
Blóm blóm blóm, blóm blóm blóm,
blóm blóm blóm, blóm blóm blóm.
x2
Lífið er leikur, fokk ungt og leikur sér,
heldur alltaf áfram, einsog lífsleiðin hún leikur með,
en aight, ég skil pointið, skal ekki púlla frontið,
sorry með allt gamla, en þú veist að það var hot shit.
'þau segja að ég sé töffari, því ég læt ekki blöffa mig,
kannski er ég í vörn eða ég veit hvað getur gerst.
Oft þungt og rokkar mig, en hey, ég fíla lífið,
en öfunda þig oft, því mér finnst það pínu skrítið.
Sé allt þetta fallega, og kannski er líf mitt lítið,
eða alltof ungur til að hafa séð "the real shit".
Fílið er feel, og þannig vil ég hafa það,
róló með prins pó, smá sushi og banana.
Svaka heita gellu, og bumbubana-nanana,
setja puttann upp, og syngja la-la-la-la-la-la,
en ég get ekki sungið hreint og gala-la-lað,
röddin er og skítug og ég held það ætt' að bannana.
En damn, það væri sick, þá væri ekkert frelsi.
Og ef ég væri ekki ungur enn, væri ég elstur.
En! Til að slá ryki í augu sögunnar,
þá mæti ég til leiks og bara syng na-na-na-na-na.
Lífið er fínt, það er frábært,
þú ert svo glöð og svo ánægð.
Blóm blóm blóm, blóm blóm blóm,
blóm blóm blóm, blóm blóm blóm.
Lífið er fínt, það er frábært,
þú ert svo glaður og ánægður.
Blóm blóm blóm, blóm blóm blóm,
blóm blóm blóm, blóm blóm blóm. x2
Ég hef tekið kreppur, alltof fokking oft,
velja' um eitt, hafna öðru, fæ það þriðja seinna.
Sama hvað ég geri, ekki nógu gott.
Vegurinn er breiður og ég þarf að ganga beinna.
Ekki lengur reiður, sorry með'a en ég nenni' ekki,
og bara útaf bleyðum sem að halda að ég semji' ekki.
Gaur! Ég rétti höndina og segi "Aight, Díll!"
Getur sagt svo margt um mig, en ég er ekki Skvíll!
Snúðu bara blaðinu, það stendur ekkert aftan á.
Hinum megin pennastrik, punktur komma framan á.
Ekki segja "prik". Finnst það ekki gaman þá,
tungur breytast rennileika, tölum öll hið sama mál.
En allir vilja nýtt og gleyma hinu gamla.
Fortíðin er fögur, en syndum á ný mið.
Á bringu eða bakinu, við ströndina að svamla.
Tökum höndum saman og við syngjum fyrir þig.
Ekki brjóta' og bramla nema byggja okkur upp.
Ég segi ekki nógu oft, lífið það er stutt.
Fortíðin er gleymd. Leyfðu mér að sitja' á baki þér.
Landið það er fagurt og lífið, það er yndislegt.
Og þótt ég lifi' í núinu, er núið bara framtíðin,
sem mætt hér er í dag, og núið það er samtíðin.
Allt fyrir stafni er fagurt ef þú lofar því
og ég horfi í spegilinn og segi "Þú átt von á því"
Lífið er fínt, það er frábært,
þú ert svo glöð og svo ánægð.
Blóm blóm blóm, blóm blóm blóm,
blóm blóm blóm, blóm blóm blóm.
Lífið er fínt, það er frábært,
þú ert svo glaður og ánægður.
Blóm blóm blóm, blóm blóm blóm, blóm blóm blóm, blóm blóm blóm. x2